Innskráningar kubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

KORMÁKUR KRUMMI....

29. ágúst 2008 klukkan 15:15
er eins árs í dag....



Elsku litli fallegi drengurinn minn... trúi ekki að það sé ár síðan hann kom í heiminn!!

Kormákur Krummi kallar sko ekki allt ömmu sína.... Nema þá kannski ömmu FJólu og ömmu Sibbu...Öskrandi
Hann er kröftugur og ákveðin með eindæmum....
Hann elskar hár.... og líður best með hendurnar í hárinu á mömmu sinni....
Hvaðan ælti hann hafi það.....???
Það er alltaf stutt í brosið hans og þessi litli kútur elskar að dansa...
Ef hann heyrir smá tónlist þá byrjar hann að dilla sér!

Í dag var smá afmælisveisla á leikskólanum... en á morgun ætlum við að halda afmælisveislu hérna hjá okkur...
Má bjóða ykkur... ??? held að það sé eitthvað laust hjá icelandexpress í kvöld....híhí
Amma Sibba er komin til okkar og var henni tekið fagnandi...
Það er mikið kósý að fá eina ömmu til okkar... það er mikil ömmu og afasöknuður hérna hjá
familíunni í Nimbus og þar af leiðandi mömmu og pabba söknuður hjá okkur GummaGráta
þó að við eigum að heita fullorðin þá þurfum við  stundum líka mömmu okkar og pabba.....

Ég vildi óska að leiðin yfir hafið væri styttri....









Ég á ammæí dag! ég á ammælí! dag ég á ammælí daaaaag!.. trallallallalllalaaaaaa!!!!

16. ágúst 2008 klukkan 15:56
Fékk þessa litlu sætu afmælisköku í morgun frá drengjunum á heimilinu....
Fersk og fín í morgunsárið frúinUllandi.... 
Það auglýsa það kannski ekki allir að þeir eigi afmæli... en ég geri það sko bara.... ég ELSKA að eiga afmæli... !!
Ég vil blöðrur- kökur - fólk og fjör..

Ég get alveg reddað blöðrum og kökum.... 
En þið fólkið mitt eruð bara svoldið langt í burtu núna.....


Afmælishjartað mitt er pínu tómt núna... 
SAKNA YKKAR!!!







úpps.....

06. ágúst 2008 klukkan 19:13
MEINTI barnanetið!! alveg er maður orðin klikk.....

Í fréttum er þetta helst að tískuvikan í kaupmannahöfn er um helgina og það vill svo skemmtilega til að tískusjúkahúsmóðirin er akkurat á leiðinni til Svíþjóðar í Astrit Lindgren garðinn. Ekki að mig hlakki ekki til að hitta Línu Langsokk og snæða með henni árbít.. ég segi það ekki.... En það hefði nú verið ANSI gaman að vera í borginni í tískuvikunni. En ég get nú ekki vælt mikið því að ég fékk boðsmiða frá skólanum mínum til að fara á sýningu á morgun svo að þegar ég er búin að rúlla með liðið á leikskólann smelli ég mér í hælana klessi á mig varalit og þramma á tískusýningu.... EIN!!!! 
Já ég segi það og skrifa... ég fékk bara boðsmiða fyrir einn.... og það er ekki hægt að kaupa sig inn á þetta eða einn. Ég veit ekki afhverju en mér finnst alltaf voða óþægilegt að fara ein á svona happening....!! Fer alltaf að ímynda mér að fólk hugsi...
æjjjj Æjjj þessi ein greyið...... Svo er fólki auðvitað bara skít sama!!! 
Eða er það ekki ?????

Karlpeningurinn á heimilinu liggur allur lágréttur í þessum skrifuðu orðum og hvílist. Klukkan er NOTA BENE rétt 9 og þeir sofnuðu allir þrír rúmlega 8. 
Er að velta því fyrir mér hvort að ég eigi að pikka í þennan elsta...
Við Guðmundur erum nefninlega í smá SEX IN THE CITY maraþoni...EKKI MISSKILJA.. að horfa á þættina SEX IN THE CITY.... svo að það kom skýrt fram. 
húsfrúin er orðin þyrst í að byrja glápið......

þangað til næst,
góðar stundir gott fólk.




myndaflóð...

05. ágúst 2008 klukkan 19:55
Hæhó... 
Loksins komnar myndir inn á barnalandið... í ein þrjú albúm....!!!
JEJEJE

Feeling hot hot hot....

30. júlí 2008 klukkan 20:35

Risalega heitt hérna í Danmörku núna... og hitabylgjan komin til Íslands líka. TIL HAMIINGJU ÍSLAND!!
Sé fyrir mér langa röð í ísbúðina í vesturbænum og hrúgu af fólki á Asturvelli..... ummmmm....
Mér finnst reyndar eiginlega alltof heitt hérna núna... sérstaklega á nóttunni. Þá vill maður kúra undir sæng. En ekki svitna eins og svín ofan á sænginni.

Eitthvað er ég myndafötluð þessa dagana þannig að ég ætti að fara hægt í að lofa myndum á barnanetið....En þær koma:0)

Patrekur er mikið að speglura í allskonar hlutum þessa dagana og eitt kvöldið kom þessi spurnig upp úr þurru:

"Mamma ég var að velta fyrir mér.... Héddna.... eigum við Kormák eða erum við bara að leigja hann??? "

....kannski ekki svo óvitlaus spurning.
Svo kom þessi óumflýanlega vændræðalega spurning sem ég hef alltaf óttast....

 " Mamma...hvernig varð ég til?.... eða sko afhverju....? Ég veit að ég vaxaði inní þér... en afhverju... ?"

hmmmmmm HJÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁLP!!!!!!
Skömmustulegur

Ninna
1 athugasemd

Heim!

18. júlí 2008 klukkan 09:57
Eftir yndislega íslandsdvöl erum við fjölskyldan komin aftur heim í Nimbus. Skrítið að vera á Íslandi og vera að fara heim... til útlanda!! En það var líka mjög gaman að finna hvað það var gott að koma aftur heim, sem þýðir greinilega að okkur líður rosalega vel hérna.
Á íslandi var tekið á móti okkur eins og konungbornum.... eins og einhver myndi orða það!  Mamma og Denni voru svo góð að lána okkur bústaðinn sinn nýbakaða svo að við hreiðruðum um okkur þar og höfðum það þvílíkt kósý. Ekki nóg með það heldur vildu þau endilega líka lána okkur jeppann sinn svo að við vorum þvílíkar dekurrófur. Mamma gerði ekki annað en að stjana við okkur grislingana fordekruðu. Um leið og eitthvað varð óhreint var því smellt í þvottavél með það sama og áður en við vissum var komin hreinn þvottur á borðið. Ekki dónalegar viðtökur þetta!!!

Við náðum því miður ekki að hitta alla sem við hefðum viljað en það er nú kannski ekkert skrítið.
En það var æðislega gaman að hitta ættingja og vini aftur og er strax komið sakn í hjartað.
Patrekur Thor flakkaði milli ömmu og afahúsa og lét sko aldeilis stjana við sig.  Nú þegar við erum komin aftur heim og leikskólinn byrjaður finnst honum frekar glatað að geta ekki haft kósý á hverju kvöldi og að hann megi ekki fá ís og kókómjólk í morgunmat. Hann skilur bara ekkert hvaða leiðindi þetta eru í mömmu sinni og pabba að láta hann fara í háttinn klukkan 9 og þurfa virkilega að vakna fyrir 10... þetta er náttúrulega alveg út í hött.

En stóru fréttirnar eru  þær að hann Kormákur Krummi er byrjaður á vöggustofu.. sem er svona leikskóli fyrir börn frá 1 - 3 ára. Þó að hann eigi nú reyndar einn og hálfan mánuð í 1. árið þá fékk hann að byrja núna. Hann blikkaði bara kellurnar og sýndi þeim hver ræður. Hann er búin að fara núna 4 daga í röð og gengur þvílíkt vel. Segi betur frá því síðar....

Við tókum fullt af myndum sem eru væntanlega á barnalandið vonandi í kveld.....
þangað til næst...

kiss kiss og útaf...
Ninna
1 athugasemd

Ísland farsældar frón!!

19. júní 2008 klukkan 14:01

Nú sit ég í Skyggni í Grímsnesi, eða nánar tiltekið nýbyggðum sumarbústað mömmu og Denna. Já við erum sum sé komin til Íslands. Ég flaug í gær ásamt stóra stúf og litla stúf til Íslands þar sem við ætlum að vera í einhvern tíma... svona tvær vikur kannski! Ég fer reyndar í fyrramálið aftur til Köben þar sem ég og Gummi ætlum að njóta þess að vera í "fríi" saman í köben í 4 daga. Drengirnir verða í pössun hérna í Grímsnesinu yfir helgina og svo komum við hjúin á mánudaginn. Við ætluma að vera mest hérna í sumarbústaðinum þar sem að við erum svo heppin að fá hann smá að láni. Svo hlökkum við bara til að fá sem flesta í heimsókn til okkar. Við ætlum ekki að vera að flakka mikið sjálf í heimsóknir heldur reyna bara að fá fólk í heimsókn í sveitina.
Við verðum með íslensku númerin okkar fyrir ykkur sem finnst við skeettleg og eruð sjúk í að hitta okkur...heheh!!

Búin að setja fullt af nýjum myndum á barnanetið....

sjáumst í sumrinu...



Grettir Ásmundarson hvað????

12. júní 2008 klukkan 20:59
Langt síðan síðast kæru vinir...
margt búið að gerast...
Fullt af heimsóknum og fullt skemmtilegt...
Sól sumar og endalaus sæla...
og ungfrú nýdanska engan áhuga haft á bloggi!!
En nú bara verð ég.
Kormákur Krummi Guðmundsson víkingur og stórmenni er byrjaður að ganga... ekki labba heldur ganga
(eins og jón baldvin segir það).
Hann tók fyrstu skrefin fyrir svona tæpum mánuði og ákvað svo bara að byrja að labba í dag.....
Já honum finnst hann hafa svona betri yfirsýn yfir hlutina standandi uppiréttur svo að auðvitað stendur maður þá upp og gengur. Ekkert væl!
Rúmlega níu mánaða er drengurinn komin með algjöra stjórn á heimilinu sem og heimilisfólki sem gerir allt sitt til þóknast þeim stutta.
Á meðan tennurnar poppa upp hver af annari hjá þeim stutta þá er byrjað að losna um tennurnar hjá frumburðinum. Enda aaaalveg að verða 6 að hans sögn.
Patrekur Thor er mikið að velta því fyrir sér hvort að núna sé hann ekki orðin svoldið danskur.
Alveg íslenskur ennþá, en samt svoldið danskur.
Tja hvur veit.
Já það er vægast sagt margt að gerast hjá þessum lífsblómum mínum.
Þar sem byrjað er að rigna og draga aðeins fyrir sólu hérna í wonderful copenhagen þá gæti verið að húsfrúin sæi sér fært að smella inn nokkrum sumarmyndum á barnanet.
En já svona meðan ég man... Við erum að koma til íslands eftir viku.
og verðum allavega í tvær vikur.
Kormákur Krummi fékk vinnu hjá vegagerðinni, tilboð sem við gátum ekki hafnað svona á síðustu og verstu tímum....
Over and out...
(myndband af litla röltandi víkingnum er komið inna á barnanet)




Ninna
1 athugasemd

Þettttt er.....

22. maí 2008 klukkan 18:16
"Júróvísjónlag... Þett'er júróvísjónlag... Þett' er alveg típískt júróvísjónlaaaaag"
Man einhver eftir þessu lagi....??? Er búin að vera með það á heilanum í dag... 
Mig minnir að spaugstofan hafi tekið þetta eitthvert árið.... þegar þeir voru fyndnir...
Þá var nú gaman....Öskrandi

Ælti það séu ekki allir að blogga um júróvísjón í dag.... Ég má nú ekki klikka á því...
Man reyndar ekkert hvernig þetta íslenska lag er...man bara að það var mjög mikið Júró..... 
og ég held að við VINNUMSvalur 
Ihhhhhhhhhhh

Afi Pétur  kom til okkar á föstudaginn og erum við búin að bralla ýmislegt skemmtilegt...
Reyndar þurfti spánarveðrið sem ég var búin að monta mig svo svakalega að taka smá pásu... akkurat þegar það kom gestur.... ISs piss!! En það er nú samt búið að vera mjög gott þó að við séum ekki kannski alveg búin að vera valhoppandi um á bikiníi og sandölum.
Í dag byrjaði reyndar spánarveðrið aftur og verður vonandi eitthvað áfram.... EN NÓG AF VEÐURFRÉTTUM!!! 

Við Gummi erum orðnir yfirlýstir stuðningsmenn FCK í handbolta og er ástæðan kannski sú að hálft liðið býr hérna í blokkinni okkar. Þeir urðu meira að segja Danmerkurmeistarar núna í fyrradag og að sjálfsögðu var horft á leikinn á þessu heimili. Maður er næstum því komin með svona "strákarnir okkar" fíling..... dáldið halló..... ég veitGlottandi

EN já júróvísjón..... Hmm... bara hálftími í geimið!! 
Hugsa að ég neyðist til að kíkja aðeins út í NETTÓ til að athuga hvort að það sé eitthvað nammi á síðasta söludegi...
Alveg hræðilegt að horfa upp á svona gott nammi skemmast í búðunum... Synd og skömm segi ég nú bara!! 

Jæja over and out my dear friends... 
ÁFRAM ÍSLAND!!! 
KOOOOOOMMMA SVOOOOOOOOOOO!!!!!

alveg er ég viss um að við rústumessssuuuuuu núna ha!!!!!!!




20. maí 2008 klukkan 15:58
Hæ hó.... Nú er 20. maí...



Þá á þessi skvísa afmæli..... Rosalega fín eftir tannaðgerðina.....Svalur

"Hún á ammæl í dag...
Hún á ammælí dag...
hún á ammæl'ún Bééé
HÚN Á AMMÆL Í DAG!!"

Til hamingju elsku vinkona!!

KNÚS FRÁ MÉR!!